





Halldór Jónsson ehf var stofnað þann 1. febrúar árið 1955. Það voru þau hjónin Agna og Halldór Jónsson sem stofnuðu fyrirtækið og í byrjun var fyrirtækið til húsa að Hafnarstræti 18 í Reykjavík.
Í fyrstu var verslað með ýmsar vörur s.s. leikföng, fatnað frá Ameríku og fl. Meira >>
Það var síðan árið 1960 sem Halldór hóf innflutning á hársnyrtivörum frá þýska fyrirtækinu Wella og hefur séð um að dreifa þeirri vöru hér á landi síðan.
Í gegnum tíðina hefur fyrirtækið sjálfsagt verið þekktast fyrir dreifingu á Wella hársnyrtivörum. Í dag starfa um 35 manns hjá fyrirtækinu og er því skipt upp í fjórar deildir: Hárvörudeild, Snyrtivörudeild, Verslunarvörudeild og Fatadeild. Auk skrifstofu þá sjáum við um alla dreifingu til viðskiptavina auk lagerhalds.

Dior og Halldór Jónsson ehf eru stoltir samstarfsaðilar „Á allra vörum”